Thursday, February 13, 2003

wwzzzuuupp

Hæ hó, þið alvöru bloggarar þarna úti, þið eruð örugglega öll í mesta lagi 25% vinnu!! Það að vera alvöru ósvikið tölvunörd tekur annsi mikinn tíma. Ég hef ekki einu sinni tærnar þar sem að þið hafið hælana... og er reyndar bara nokkuð sáttur við það! En gefst samt ekki upp á því að reyna að vera blogger.

Óþolandi kerlingarbeyglur...

Svona í ljósi þess að ég er aðalmaður ræstideildarinnar í vinnunni þá hef ég verið að gera rannsókn. Og þar sem að ég þarf að skúra kk klefa og svo kvk klefa hef ég haft tækifæri á því að sjá mun milli kynjanna hvað varðar snyrtimennsku! Og hef komist að því að kvenkynsvængur mannkynsins eða öllu heldu helv... kerlingarbeyglurnar eru ÓÞOLANDI hvað þetta varðar!!!!!! Þær ganga illa um, kunna ekki að hitta í ruslafötur(rangeygðar kannski), skilja hárið á sér eftir allstaðar(ótrúlegt að þær séu ekki sköllóttar miðað við magnið), og síðast en ekki síst svona til að fylla mælinn þá eru þær fyrstar til að kvarta! OG KVARTA MIKIÐ!!! Hef verið nálægt því að taka einhverja kerlingar drusluna(reyndar alltaf komnar yfir 35 ára) sem er að kvabba og hrækja bara í augað á henni og sagt henni að stinga þessum kvörtunum...

Annars er ég bara í goody fíling, er í massa átaki í ræktinni. Er að þyngja mig! Gaman, verð að borða eins og ég get í mig látið. Hræðilegt alveg, veit reyndar um nokkrar stelpur sem eru að reyna að skera sig niður væru alveg til í að vera í þeim pakka.

Wednesday, February 12, 2003

Lazy boy

Ég er lazy boy. Ekkert búinn að vera að blogga. Var skammaður áðan fyrir það. Verð semsagt að taka á mig rögg. Er bara annaðhvort búinn að vera fullur, þunnur, lasinn eða... já, bara dullulatur!

Ég er að reyna að blogga og tala við fullt af fólki á msn í leiðinni og held ég hafi klúðrað feitt. Fór að svara vitlaust... Djöfull getur maður verið stúpit! Fleiri en tveir hlutir að hugsa um í einu og maður fer í kerfi... sannar samt það að ég er alvöru karlmaður.

Thursday, February 06, 2003

Lífsmark...

Ég er með lífsmarki. Er samt búinn að vera í móki síðan ég skrifaði síðast. En er að ranka við mér og mitt fyrsta verk er auðvitað að blogga!!! En ætla ekki að hafa þetta neina langloku núna, bara láta vita að ég sé ekki dauður og ekki búið að leggja mig neinstaðar inn enþá!

Monday, February 03, 2003

Kreisí boss, crazy staff...no komment um kúnnana!

Er það bara ég sem er svona fukkt í hausnum... eða eru allir aðrir að missa sig??? Var í vinnunni, stjóranum fannst ég eitthvað ekki hafa staðið mig nógu vel og sagði að ég yrði laminn. Sem er kannski ekki svo scary, en þegar að risastór boxari kom og bauðst til að refsa mér.... það var ekki nógu kúl þ.s. hann var ekki að tala um að berja mig, heldur einhverskonar öðruvísi refsingu... þið megið ýminda ykkur rest!!! ...ætli ég reyni ekki bara að standa mig betur. Svona á að stjórna staffi!!!!
Frútkeik

Ég er á góðri leið með það að verða að grænmeti! Fór að sulla í mjöð á laugardagskvöldið og kíkti á bæjarröltið með vinkonum mínum. Alltaf sama liðið þarna niðrí bæ... það er svona kjarni sem maður hittir alltaf, og svo við hin sem að kíkjum bara svona öðru hvoru. Fóir seint að sofa þá. Og fór seint að sofa í gær og vakanði svo kl 4.00 og fór að vinna. Ótrúlega hress! Svo var líka verið að lakka eitthvað parket í vinnunni, það stinkaði svo mikið að þetta var eins og að stinga höfðinu ofaní terpentínu dollu! Ég var kominn í goody fíling á nó tæm. Sveif um staðinn... eins og fiðrildi með skúringamoppuna! En ætla að fara að leggja mig... skrifa meira seinna...

Saturday, February 01, 2003

Dazed and confused...

...ég er dæmdur til þess að vera endalaust dasaður! Ef ég er ekki nývaknaður ..og vankaður eftir því, þá er ég á leiðinni að leggja mig. Þetta kemur til af stöðuhækkun minni í vinnunni. Ég er orðinn deildarstjóri ræstideildarinnar. Hvorki meira né minna, er reyndar eini starfsmaður deildarinnar. Þetta gerir það að verkum að ég mæti til vinnu kl. hálf-fimm suma morgna, ekkert smá harður...! Ég vill reyndar meina að mitt aðalstarf sé persónuleg ráðgjöf í vöðvahnykklun, en þetta tekur töluverðan tíma frá því. Þá daga sem ég vinn svona snemma þá sef ég yfileitt 4 tíma og svo aftur 2-3 eftir vinnu. Þetta er ekki hollt. Sem heilsuráðgjafi mæli ég ekki með þessu. Maður verður fukkt í kollinum á þessu, ég má ekki við þessu öll saman.

...þannig að ef þið lesið um strákpjakk sem snappaði í ónefndri vöðvaræktunarstöð í úthverfi höfuðborgarsvæðisins, þá... gæti til dæmis tekið kastið út á yfirmanninum, sem by the way kallaði mig heilalaust kvikindi um daginn! En bætti það svo upp með því að bjóða mér í þrítugsafmælið sitt. Þar var mikið teygað af mjöð og einhverji funky bollu.

Friday, January 31, 2003

El crapo!

Sæl og blessuð tölvunörðar. Hér er ég! Farinn að blogga, skrá niður mínar funky pælingar og það sem á mína daga drífur. Ég er svo lélegur skáldari þannig að ég verð bara að tala um mitt undraverða daglega líf. Sjáum svo til hversu ritfær ég er, ætli ég sé ekki hræðilegur penni og þetta sé algjörlega ólesandi efni hjá mér. En... fukk it, Skrifa bara samt!

Þið ykkar sem eruð ekki sátt við það skuluð ekki erfa það við mig heldur félaga minn Satan Dýra sem að gerðist svo djarfur að setja síðuna upp fyrir mig. Það á reyndar eftir að setja inn comment fídusinn. Þannig að þið haldið ykkar skoðunum um þetta bara fyrir ykkur um sinn!

Thursday, January 30, 2003

blehhh blehh